Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2019 | 18:00

LET Access: Guðrún Brá á +1 e. 1. dag Amundi Czech Ladies Challenge

Guðrún Brá Björgvinsdóttir tekur þátt í móti vikunnar á LET Access mótaröðinni, þ.e. Amundi Czech Ladies Challenge 2019.

Mótið fer fram á golfstaðnum Konopiste í Bystrice, Tékklandi, dagana 1.-3. ágúst 2019.

Guðrún Brá lék 1. hring á 1 yfir pari, 73 höggum.

Sem stendur er niðurskurður miðaður við 2 yfir pari eða betra og ef þetta verður niðurstaðan þá er Guðrún Brá fyrir ofan niðurskurðarlínu.

Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: