Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2019 | 19:00

Opna breska kvenrisamótið 2019: Buhai efst e. 1. dag

Opna breska kvenrisamótið (ens.: AIG Women´s Britsh Open) hófst í dag í Woburn, í Englandi og stendur dagana 1.-4. ágúst 2019.

Eftir 1. dag er Ashley Buhai frá Suður-Afríku efst, en hún kom í hús á 7 undir pari, 65 höggum.

Í 2. sæti eru Hinabo Shibuno frá Japan og Danielle Kang frá Bandaríkjunum, báðar 1 höggi á eftir.

Sjá má stöðuna eftir 1. hring AIG Women´s British Open með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 1. dags á AIG Women´s British Open með því að SMELLA HÉR: