Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2019 | 00:01

PGA: Im og An efstir á Wyndham

Tveir suður-kóreanskir kylfingar eru efstir og jafnir eftir 1. dag móts vikunnar á PGA Tour, Wyndham Champioship þeir Sungjae Im og Byeong Hun An, en báðir luku 1. hring á 8 undir pari, 62 höggum, hvor.

Öðru sætinu deila 4 kylfingar, sem allir voru á 7 undir pari, 63 höggum.

Þetta eru þeir: Johnson Wagner og Patrick Rodgers frá Bandaríkjunum, Rory Sabbatini frá Slóvakíu og kanadíski kylfingurinn Mackenzie Hughes.

Sjá má stöðuna á Wyndham Championship með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 1. dags á Wyndham Championship með því að SMELLA HÉR:

Í aðalmyndaglugga: T.v.: Sungjae Im og t.h.: Byeong Hun An