Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2019 | 22:00

PGA: 3. hring á Tour Championship frestað v/veðurs

Leik á 3. hring Tour Championship var frestað vegna veðurs þ.e. þrumuveðurs.

Það var kl. 16:17 að staðartíma á East Lake eftir að 6 áhorfendur höfðu meiðst vegna þrumuveðursins.

Leikurinn var stöðvaður rétt eftir að lokahollið með þeim Justin Thomas og Brooks Koepka innanborðs var að ljúka við 5. holuna.

Leik verður fram haldið sunnudaginn 25. ágúst.

Sem fyrr er Justin Thomas efstur á samtals 12 undir pari en fast á hæla hans eru þeir Brooks Koepka og Rory McIlroy á samtals 11 undir pari. – Sjá má stöðuna á Tour Championship að öðru leyti með því að SMELLA HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: East Lake. Mynd: PGA Tour