Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2019 | 14:00

5 á spítala e. að eldingu laust í tré á East Lake

Leik var frestað á síðasta móti PGA Tour á 2018-2019 keppnistímabilinu, Tour Championship, vegna þrumuveðurs.

6 áhorfendur slösuðust eftir að eldingu laust niður í grenitré nálægt 16. teig á East Lake Club í Atlanta, þar sem mótið fer fram.

Skv. fréttatilkynningu PGA Tour slösuðust áhorfendurnir vegna tréflísa frá trénu.

Flytja varð 5 hinna 6, sem slösuðust á sjúkrahús, en þeir voru fluttir í Grady Memorial Hospital í Atlanta.

Sá sjötti var meðhöndlaður á East Lake og fékk að fara að því loknu.