Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2019 | 23:00

LPGA: Ko sigraði á CP

Það var nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Jin Young Ko, sem sigraði á CP Women´s Open, móti vikunnar á LPGA mótaröðinni.

Sigurskor Ko var 26 undir pari, 262 högg (66 – 67 – 65 – 64).

Fyrir sigur sinn hlaut Ko $337,500 sigurtékka.

Í 2. sæti, 5 höggum á eftir, varð danski kylfingurinn Nicole Broch Larsen á samtals 21 undir pari.

Bandaríski kylfingurinn Lizette Salas og heimakonan Brooke M. Henderson deildu síðan 3. sætinu á samtals 19 undir pari, hvor.

Sjá má lokastöðuna á CP Women´s Open með því að SMELLA HÉR: