Photo by Arnaldur Halldórsson / 2019 Warner Bros. Entertainment Inc.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2019 | 19:00

LPGA: Ólafía m/á Cambia Portland mótinu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, mun keppa á Cambia Portland, sem er mót vikunnar á LPGA.

Mótið fer fram dagana 29. ágúst – 1. september 2019 í Portland, Oregon í Banda´rikjunum.

Það sem af er árs hefir Ólafía spilað í 7 LPGA mótum, en aðeins 1 sinni komist í gegnum niðurskurð.

Eins hefir Ólafía Þórunn spilað í 8 mótum á Symetra Tour og komist 5 sinnum í gegnum niðurskurð.

Sjá má upplýsingar um mótið með því að SMELLA HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd: Arnaldur Halldórsson.