Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 20:19

LPGA: Yani Tseng leiðir á Hana Bank-mótinu í Incheon eftir 1. dag

Yani Tseng lék eins og heimsins besti kylfingur (sem hún er skv. Rolex-listanum) á LPGA Hana Bank Championship, sem fram fer nú um helgina í Sky 72 Golf Club í Incheon í Suður-Kóreu. Yani kom inn á 65 höggum.

Yani fékk 10 fugla og 3 skolla og á eitt högg á Chellu Choi, sem er í 2. sæti.

Sú sem á titil að verja heimakonan Na Yeon Choi deilir 3. sætinu með þýska fyrrum W-7 módelinu og Solheim Cup liðsmanni Evrópu, Söndru Gal.  Þær eru báðar á -5 undir pari.

Meðal 6 stúlkna sem deila 5. sætinu eru Paula Creamer og Sophie Gustafsson – hinar eru allt heimakonur Meena Lee, Hee Young Park, Jimin Kang og Mi Hyun Kim.

„Tempóið var ekki nógu gott hjá mér í byrjun,” sagði Tseng. „ég reyndi að finna út hvað væri að sveiflunni hjá mér.”  Þegar hún var búin að gera upp við sig hvað væri að, setti hún niður 7 fugla á 11 næstu holum sínum.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Hana Bank, smellið HÉR: