Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Marcus Armitage (13/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.
Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.
Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.
Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.
Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-25 og þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu. Nú er komið að því að kynna þá 4, sem deildu 13. sætinu en það eru: Johannes Veerman frá Bandaríkjunum, Garrick Porteous, frá Englandi, Jake McLeod, frá Ástralíu og þeim sem kynntur verður í dag Marcus Armitage frá Englandi.
Marcus Armitage lék á samtals 14 undir pari, 414 höggum (68 72 69 65 69 71) í lokaúrtökumótinu og varð þar með T-13 (eða uppreiknað í 16. sæti).
Marcus Armitage fæddist 15. júlí 1987 í Salford, Englandi og er því 32 ára.
Hann er 1,83 m á hæð og 90 kg.
Armitage var valinn nýliði ársins á PGA EuroPro Tour, árið 2013. Árið á eftir var hann að vinna í sveiflunni sinni og það virðist hafa borgað sig því hann vann tvívegis árið 2015 á PGA EuroPro Tour og varð í 4. sæti á peningalistanum og ávann sér sæti á Áskorendamótaröð Evrópu 2016.
Það ár, 2016, sigraði Armitage á Foshan Open og varð einnig í 2. sæti á Volopa Irish Challenge og vaðr því í 11. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar og komst í 1. sinn á Evróputúrinn 2017.
Það ár, 2017, var hins vegar ár vonbrigða og hann missti kortið sitt og spilarétt á Evróputúrnum. Hann spilaði því aftur á Áskorendamótaröðinni 2018 og varð m.a. í 2. sæti á Belt & Road Colorful Yunnan Open. Hann átti hins vegar ekkert sérstök tímabil 2018 og 2019 á Áskorendamótaröðinni; fyrra árið varð hann í 50. sæti og seinna í 85. sæti. En hins vegar náði hann að næla sér í 16. sætið eins og segir í lokaúrtökumótinu.
Hann hefir aðeins einu sinni tekið þátt í risamóti þ.e. Opna breska og þar náði hann ekki niðurskurði 2018.
Það sem af er árinu þ.e. í janúar 2020 náði hann besta árangri sínum á Evróputúrnum til þess þ.e. 3. sætinu á South African Open.
Armitage býr í Huddersfield í Englandi. Hann er í 481. sæti á heimslistanum, sem stendur.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024