Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2020 | 15:25

Evróputúrinn: Pepperell efstur í hálfleik í Dubai

Það er enski kylfingurinn Eddie Pepperell, sem leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic.

Hann er búinn að spila á samtals á 8 undir pari, 136 höggum (69 67).

Í 2. sæti eru þrír kylfingar, allir 2 höggum á eftir Pepperell: Dean Burmester frá S-Afríku; Robert Karlsson frá Svíþjóð og bandaríski kylfingurinn Bryson deChambeau.

Til þess að sjá stöðuna á Omega Dubai Desert Classic SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Omega Dubai Desert Classic SMELLIÐ HÉR: