Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Arron M Oberholser – 2. febrúar 2020

Afmæliskylfingur dagsins er Arron Matthew Oberholser. Oberholser fæddist 2. febrúar 1975 í San Luis Obispo, Kaliforníu og á því 45 ára afmæli. Hann lék í bandaríska háskólagolfinu með lið San Jose State University. Oberholser gerðist atvinnumaður í golfi 1998 og dró sig í hlé 2013. Á ferli sínum sigraði hann í 6 mótum þ.á.m 1 á PGA Tour þ.e. AT&T Pebble Beach National Pro-Am, 12. febrúar 2006 – átti 5 högg á Rory Sabbatini. Besti árangur Oberholser í risamótum var T-4 árangur á PGA Championship 2007. Í dag býr Oberholser í Scottsdale, Arizona ásamt eiginkonu sinni Angie og starfar sem golffréttaskýrandi fyrir Golf Channel.

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Jenny Sigurðardóttir, 2. febrúar 1961 (59 ára); Sigríður K. Andrésdóttir, 2. febrúar 1967 (53 ára); Þorgeir R. Pálsson, 2. febrúar 1968 (52 ára); Virginie Lagoutte-Clement, 2. febrúar 1979 (41 árs);  MummDesign Mumm (39 ára); Gallerí Jenný, 2. febrúar 1985 (35 ára); Gísli Þór Þórðarson, 2. febrúar 1993 (27 ára) … og …

Golf 1 óskar öllum afmæliskylfingum dagsins innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is