Ástralski kylfingurinn og áhugamaðurinn Stephanie Kyriacou sigraði á Geoff King Australia Ladies Classic í Bonville um sl. helgi. Kyriacou er nýorðin 19 ára, fædd 22. nóvember 2000. Pabbi hennar er af grísku bergi brotinn og mamma hennar er frá Líbanon.
Mótið var samtstarfsverkefni LET og LPGA.
Þetta er í aðeins í 10. skiptið í 42 ára sögu LET sem áhugamaður sigrar í móti á mótaröðinni.
Af því tilefni var tekið viðtal við Kyriacou af LET, sem birtist á vefsíðu mótaraðarinna, sem sjá má hér að neðan í lauslegri þýðingu.
Kyriacou er svo sannarlega nafn, sem vert er að fylgjast með í golfi!!!
Hvað er það eftirminnilegasta í golfinu? Að sigra the Australian Master of the Amateurs á Royal Melbourne sl. janúar.
Hver er lægsti hringur á ferlinum?
-9 (63) Bonville Golf Resort – 2020 Australian Ladies Classic
Í hvaða golfklúbb í Ástralíu ertu félagi?
St. Michael’s Golf Club
Hvert er uppáhaldsliðið þitt?:
South Sydney Rabbitohs
Hver er uppáhalds kylfingur þinn?:
Brooks Koepka
Hver er uppáhaldsmaturinn:
Sushi.
Hvaða íþróttamaður veitir þér mestan innblástur?:
Muhammad Ali – hann er bara með virkilega góða innstillingu.
Hvað finnst þér gaman að gera þegar þú ert ekki að spila golf:
Að fara á ströndina og borða. Ég fer alltaf á the Sushi Train.
Hverskyns Champions Dinner myndir þú bera fram ef þú sigraði á the Masters?
Mismunandi tegundir af pasta – það er svo hollt! –
Hver myndi vera fylgdarmaður þinn og af hverju?
Jason Momoa – hann er mjög aðlaðandi nánungi.
Hver hefir haft mest áhrif á golfferil þinn og af hverju:
Pabbi, vegna óskilyrðislausrar aðstoðar og stuðnings hans við mig.