Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Tomoko Yokoyama (10/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu, þ.e.: sænski kylfingurinn Emma Westin, Anaelle Carnet frá Frakklandi, Vani Kapoor frá Indlandi og enski kylfingurinn Georgia Coughlin. Næst var kynnt sú stúlka sem varð ein í 60. sætinu, en það var Rochelle Morris frá Englandi og sú sem varð ein í 59. sæti en það var hin franska María Beautell.

Næst verða kynntar þær tvær sem deildu 57. sætinu, en þær spiluðu báðar á 12 yfir pari, 373 höggum Þetta eru þær Tomoko Yokoyama frá Japan og hin spænska Marta Llorca.

Byrjað verður á Yokoyama en hún var uppreiknað í 58. sætinu; lék hringina 5 á 74 75 75 72 77.

Tomoko Yokoyama fæddist 22. júní 1984 í Kagawa, Japan og er því 35 ára.

Hún býr í Irvine, Kaliforníu og Takatsu í Japan.

Yokoyama hefir spilað á japanska LPGA og á mótaröðum í Japan frá árinu 2010.

Yokoyama er í dag nr. 1197 á Rolex-heimslista kvenna.