Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2020 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Jinho Choi (19/28)

28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.

Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.

Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.

Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.

Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-28, þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu og þá 4, sem deildu 13. sætinu. Næst verða kynntir þeir 5 sem urðu T-8 en það eru Robin Siegrist frá Frakklandi; Carlos Pigem frá Spáni, Jinho Choi frá S-Kóreu, Adrien Saddier frá Frakklandi og Sami Välimäki frá Finnlandi. Þeir léku allir á 15 undir pari, 413 höggum.

Välimäki og Saddier hafa þegar verið kynntir og í dag er það Jinho Choi, sem verður kynntur en hann varð uppreiknað í 10. sæti á lokaúrtökumótinu.

Jinho Choi fæddist 27. maí 1984 og er því 35 ára.

Choi er 1,7 m á hæð.

Hann gerðist atvinnumaður í golfi árið 2005.

Choi er sem stendur nr. 757 á heimslistanum.

Besti árangur í móti er 2. sætið á Commercial Bank Qatar Masters árið 2019þ

Í ár spilar Choi á mótaröð þeirra bestu í Evrópu.