Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Sophie Keech (14/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinuog þær tvær sem deildu 57. sætinu, en þær spiluðu báðar á 12 yfir pari, 373 höggum

Næst verða kynntar þær 7 stúlkur sem urðu jafnar í 50. sæti þ.e. T-50 á samtals 11 yfir pari, 372 höggum, en þetta eru þær: Emelie Borggren frá Svíþjóð; Greta Isabella Voelker frá Þýskalandi indverski kylfingurinn Sharmila Nicolett; Louise Markvardsen frá Danmörku; enski kylfingurinn Sophie Keech, Justine Dreher frá Frakklandi og Ainil Bakar frá Malasíu.

Ainil Bakar og Justine Dreher hafa verið kynntar og í dag er röðin komin að Sophie Keech frá Englandi. Keech varð uppreiknað í 54. sætinu á lokaúrtökumótinu

Sophie Keech fæddist 1. maí 1996 í Dorchester, Englandi og er því 23 ára. Í dag býr hún í Devon, Englandi.

Keech byrjaði að spila golf 9 ára og segir afa sinn vera þann sem hafi haft mest áhrif á golfleik sinn.

Hápunktar á ferli Keech eru eftirfarandi:

Árið 2014 varð hún T-8 á WPGA International Challenge, meðan hún var enn áhugamaður í golfi.

Hún sigraði í English Amateur árið 2015.

Árið 2016 spilaði hún í 11 mótum Let Access, 2. bestu kvenmótaraðar í Evrópu. Besti árangur hennar það ár var 4. sætið á Elisefarm Ladies Open.

Árið 2017 spilaði Sophie í 12 mótum LET Access og komst í gegnum niðurskurð í helmingi mótanna sem hún tók þátt í.

Sophie mun enn þetta árið spila á LET Access.

Utan golfvallarins hefir Sophie gaman af verslunarleiðöngrum og að hlusta á tónlist.

Sjá má nýlegt viðtal við Sophie á LET Access með því að SMELLA HÉR: