Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Emelie Borggren (18/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, en þær spiluðu báðar á 12 yfir pari, 373 höggum

Næst verða kynntar þær 7 stúlkur sem urðu jafnar í 50. sæti þ.e. T-50 á samtals 11 yfir pari, 372 höggum, en þetta eru þær: Emelie Borggren, frá Svíþjóð; Greta Isabella Voelker, frá Þýskalandi indverski kylfingurinn Sharmila Nicollet, Louise Markvardsen, frá Danmörku; enski kylfingurinn Sophie Keech, Justine Dreher, frá Frakklandi og Ainil Bakar, frá Malasíu.

Allar nema Emelie Borggren hafa verið kynntar og í dag er röðin komin að henni. Borggren var uppreiknað í 50. sætinu á lokaúrtökumótinu og spilar því ekki á Evrópumótaröð kvenna á næsta keppnistímabili.

Emelie Borggren fæddist 1990 í Svíþjóð og er því 29 ára.

Borggren er í Kristianstads Golfklubb i Åhus, Svíþjóð.

Meðal hápunkta Borggren er sigur hennar á Erlandsson Hagge Ladies Open, í fyrra, 2019, á mótaröð þeirra bestu í Svíþjóð.