Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Line Toft Hansen (31/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43 og þær 6 sem urðu T-37.

Næst verða kynntar þær 4 sem deildu 33. sætinu, en þær léku allar á samtals 8 yfir pari. Þetta eru: hin spænska Marta Martin; Anna Magnusson frá Svíþjóð og dönsku kylfingarnir Line Toft Hansen og Linette Littau Durr Holmslykke. Búið er að kynna Holmslykke en í dag verður Line Toft Hansen kynnt en hún varð uppreiknað í 35. sætinu.

Line Toft Hansen fæddist 1999 og er því rétt tvítug.

Hún hefir spilað golf frá árinu 2008 og verið í danska landsliðinu í golfi frá árinu 2012.

Line gerðist atvinnumaður í golfi 2019. Hún á einn eldri bróður Morten Toft Hansen, sem einnig gerðist atvinnumaður í golfi 2019.

Þrátt fyrir ungan aldur hefir hún þurft að undirgangast skurðaðgerðir á hendi til þess að geta spilað; þá fyrri 2017 og seinni 2018.

Besti árangur Line á árinu 2019 var 3. sætið á German International Amateur.

Best hefir Line náð að verða nr. 223 á Rolex-heimslista kvenna.