Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Þór Sigurjónsson – 2. júlí 2020

Afmæliskylfingur dagsins er Gunnar Þór Sigurjónsson. Gunnar Þór fæddist 2. júlí 1994 og á því 26 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Gunnar Þór hefir spilað á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri og hefir m.a. unnið hjá Golfspjall.is.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Gunnar Þór. Mynd: Golf 1.

Gunnar Þór Sigurjónsson (26 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Alfred Harry Padgham, f. 2. júlí 1906 – d. 4. mars 1966 ; Brianne Jade Arthur, 2. júlí 1988 (32 ára – áströlsk – á LET) … og …. Steinunn Olina Thorsteinsdottir

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is