Íslandsmótið í golfi 2021 fer fram á Akureyri og í Vestmannaeyjum 2022
Íslandsmótið í golfi 2021 fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri dagana 5.-8. ágúst.
Golfsamband Íslands er framkvæmdaraðili Íslandsmótsins 2021 í samstarfi við Golfklúbb Akureyrar.
Íslandsmótið fór fram síðast á Jaðarsvelli árið 2016. Á Íslandsmótinu í golfi 2021 verður keppt um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki í 80. sinn og í 55. sinn í kvennaflokki. Fyrst var keppt í karlaflokki árið 1942 og árið 1967 í kvennaflokki.
Frá því að keppt var fyrst á Íslandsmótinu í golfi hefur Íslandsmótið farið fram alls 17 sinnum á Akureyri. Íslandsmótið 2021 verður það átjánda frá upphafi sem fram fer á Akureyri. Í kvennaflokki hefur mótið farið fram alls 9 sinnum á Akureyri frá því að fyrst var keppt í kvennaflokki á Akureyri árið 1971.
Íslandsmótið 2016 sem fram fór á Jaðarsvelli var sögulegt. Þar setti Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, nýtt mótsmet í kvennaflokki þegar hún lék samtals 11 höggum undir pari vallar – eftir gríðarlega harða baráttu gegn Valdísi Þóru Jónsdóttur, GL, sem lék á -9 samtals. Ólafía Þórunn fagnaði sínum þriðja Íslandsmeistaratitli árið 2016.
Í karlaflokki setti Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, met en hann fagnaði þar sínum sjöunda Íslandsmeistaratitli með eftirminnilegum lokahring. Birgir Leifur lék á 66 höggum eða 5 þegar mest á reyndi og -8 samtals. Bjarki Pétursson, GKB, og Axel Bóasson voru einu höggi á eftir og léku umspil um annað sætið þar sem að Axel hafði betur.
Íslandsmeistarar í karlaflokki þegar mótið hefur farið fram á Akureyri:
1946: Sigtryggur Júlíusson, GA
1949: Jón Egilsson, GA
1952: Birgir Sigurðsson, GA
1955: Hermann Ingimarsson, GA
1958: Magnús Guðmundsson, GA
1961: Gunnar Sólnes, GA
1963: Magnús Guðmundsson, GA
1966: Magnús Guðmundsson, GA
1971: Guðfinna Sigurþórsdóttir, GS / Björgvin Þorsteinsson, GA
1975: Kristín Pálsdóttir, GK / Björgvin Þorsteinsson, GA
1979: Jóhanna Ingólfsdóttir, GR / Hannes Eyvindsson, GR
1985: Ragnhildur Sigurðardóttir, GR / Sigurður Pétursson, GR
1987: Þórdís Geirsdóttir, GK / Úlfar Jónsson, GK
1990: Karen Sævarsdóttir, GS / Úlfar Jónsson, GK
1994: Karen Sævarsdóttir, GS / Sigurpáll G. Sveinsson, GA
2000: Kristín Elsa Erlendsdóttir, GK / Björgvin Sigurbergsson, GK
2016: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR / Birgir Leifur Hafþórsson, GKG
_____________________________________________________________________
Golfsamband Íslands samþykkti á síðasta stjórnarfundi tillögu mótanefndar GSÍ þess efnis að Íslandsmótið í golfi árið 2022 fari fram í Vestmannaeyjum dagana 4.- 7. ágúst.
Mótanefnd hafði áður farið yfir þær umsóknir sem bárust um að halda Íslandsmótið í golfi árið 2022.
Það liggur því fyrir að hvar næstu tvö Íslandsmót í golfi fara fram. Eins og frá greinir hér að ofan fer Íslandsmótið 2021 fram á Jaðarsvelli hjá Golfklúbbi Akureyrar og árið 2022 í Vestmannaeyjum. Golfsamband Íslands er framkvæmdaraðili Íslandsmótsins í samstarfi við þá golfklúbba þar sem að mótin fara fram.
Íslandsmótið 2022 verður það fimmta í röðinni í Vestmannaeyjum frá því að völlurinn var stækkaður í 18 holur en fyrir þann tíma hafði mótið farið fjórum sinnum fram á Vestmannaeyjavelli þegar völlurinn 9 holur.
Íslandsmótið í golfi fór fram í fyrsta sinn í Vestmannaeyjum árið 1959 þar sem að heimamaðurinn Sveinn Ársælsson sigraði. Á næsta áratug fór mótið þrisvar sinnum til viðbótar fram í Vestmannaeyjum. Óttar Yngvason (GR) vann árið 1962, Magnús Guðmundsson (GA) árið 1964. Árið 1968 var tvöfaldur sigur hjá GS þar sem að Þorbjörn Kjærbo og Guðfinna Sigurþórsdóttir sigruðu. Það var jafnframt í annað sinn sem keppt var um Íslandsmeistaratitlinn í kvennaflokki.
Það liðu 35 ár þar til að Íslandsmótið fór fram að nýju í Eyjum. Birgir Leifur Hafþórsson (GL) og Karen Sævarsdóttir (GS) sigruðu árið 1996. Karen er dóttir Guðfinnu sem sigraði árið 1968. Árið 2003 sigraði Birgir Leifur á ný og þá fyrir GKG og Ragnhildur Sigurðardóttir (GR) sigraði í kvennaflokki. Kristján Þór Einarsson (GM) og Helena Árnadóttir (GR) sigruðu árið 2008. Árið 2018 sigraði Keilir tvöfalt þegar Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum.
Texti og myndir: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024