Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2020 | 18:00

LPGA: Reid sigraði á Shoprite

Það var enski kylfingurinn Mel Reid, sem sigraði á Shoprite LPGA Classic mótinu, sem fram fór 1.-4. október sl.

Mótið fór fram í Galloway, New Jersey.

Sigurskor Reid var 19 undir pari, 265 högg (68 – 64 – 66 – 67) og er þetta fyrsti sigur hennar á LPGA mótaröðinni.

Í 2. sæti, 2 höggum á eftir varð bandaríski kylfingurinn Jennifer Kupcho og í 3. sæti landa hennar og nafna Song, sem var á samtals 16 undir pari.

Til þess að sjá lokastöðuna á Shoprite mótinu SMELLIÐ HÉR: