Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2020 | 12:00

PGA: Laird sigraði á Shriners

Það var skoski kylfingur Martin Laird, sem stóð sig best í 3 manna bráðabana sem til þurfti til að skera úr um úrslitin í Shriner´s Hospitals for Children Open, sem fram fór dagana 8.-11. október 2020.

Eftir hefðbundinn leik voru þeir Austin Cook, Matthew Wolff og Laird efstir og jafnir; allir á samtals 23 undir pari.

Það þurfti því að koma til bráðabana og þar sigraði Laird með fugli á 2. holu.

Þetta er fyrsti sigur Laird á stórmóti í 7 ár!

Abraham Ancer frá Mexíkó varð í 4. sæti.

Sjá má lokastöðuna á Shriner´s Hospitals for Children Open með því að SMELLA HÉR: