Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2020 | 18:00

LET: Chiara Noja yngsti þátttakandi í OMEGA Dubai Moonlight Classic

Hin þýska 14 ára Chiara Noja verður yngsti þátttakandi í Omega Dubai Moonlight Classic mótinu, sem hefst í næstu viku og er hluti af Evrópumótaröð kvenna (LET).

Noja er nýflutt til Dubai, þar sem fjölskylda vill veita henni kjöraðstæður til æfinga.

Noja vakti fyrst athygli á sér þegar hún sigraði í Hertfordshire Lady County Championship aðeins 12 ára.

Þrátt fyrir ungan aldur er hún þegar komin með forgjöf upp á +5.

Það verður spennandi að sjá hvernig Chiara vegnar meðal atvinnumannanna, en meðal þátttakenda í mótinu er einnig Guðrún Brá „okkar“ Björgvinsdóttir og mótið mjög sterkt.