Nýju stúlkurnar á LET 2020: Alice Hewson (61/65)
Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.
Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:
Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.
Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu; þær fjórar sem deildu 20. sætinu; þær 10 stúlkur sem voru T-10; loks þær tvær sem urðu T-8; þýski kylfingurinn Sarina Schmidt, sem var ein í 7. sætinu og norski kylfingurinn Maiken Bing Poulsen, sem var ein í 6. sætinu.
Næst verður kynnt sú stúlks sem varð í 5. sæti á lokaúrtökumótinu en það var áhugamaðurinn Alice Hewson. Hún lék á samtals á 5 undir pari pari, 356 höggum (76 68 70 73 69) og tryggði sér þar með öruggt sæti og fullan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (skammst: LET). Hún er jafnframt sú fyrsta sem kynnt verður sem var með heildarskor undir pari.
Alice Hewson fæddist 19. ágúst 1997 og er því 23 ára.
Hewson er frá Berkhamsted í Hertfordshire á Englandi.
Hún byrjaði að spila golf 6 ára og tók þátt í fyrsta móti sínu aðeins 7 ára.
Hún sigraði U13 meistaramótið og var í U18 landsliði Englands aðeins 15 ára.
Hún hefir spilað í 5 Vagliano Trophy liðakeppnum og eins var hún fulltrúi GB og Írlands í Curtis Cup árin 2016 og 2018. Ennfremur tók hún þátt í Asto Trophy. Jafnframt var hún fulltrúi Englands í European Girl´s Team tvívegis og lék 5 sinnum í European Ladies Team Championship, en lið hennar sigraði tvö ár í röð 2016 og 2017.
Hewson spilaði í bandaríska háskólagolfinu á árunum 2015-2019 með liði Clemson University. Hún vann sem nýliði einstaklingskeppnina tvívegis og við útskrift var hún búin að setja 49 met við Clemson.
Hewson gerðist atvinnumaður í golfi 2019.
Þrátt fyrir ungan aldur á Hewson nokkra sigra í beltinu á stórmótum m.a. sigraði hún 2019 á European Ladies Amateur og eftir að hafa náð kortinu sínu á LET gerði hún sér lítið fyrir og sigraði þegar á nýliðaári sínu þ.e. á Investec South African Women´s Open.
Sjá má nýlegt kynningarviðtal við Hewson með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024