25/01/2020. Ladies European Tour. Final Stage Qualifying School. La Manga Club, South Course, Spain. Jan 22-26 2020 Alison Muirhead of Scotland during the fourth round. Credit: Tristan Jones
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Alison Muirhead (63/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu; þær fjórar sem deildu 20. sætinu; þær 10 stúlkur sem voru T-10; loks þær tvær sem urðu T-8; þýski kylfingurinn Sarina Schmidt, sem var ein í 7. sætinu og norski kylfingurinn Maiken Bing Poulsen, sem var ein í 6. sætinu og Alice Hewson frá Englandi, sem var ein í 5. sætinu.

Nú á bara eftir að kynna þær sem urðu í 4 efstu sætunum og var byrjað á þeirri sem hafnaði einmitt ein í 4. sætinu en það er svissneski kylfingurinn Kim Metraux. Nú verða þær kynntar, sem urðu í 2. sætinu en það er skoski áhugamaðurinn Alison Muirhead og Magdalena Simmermacher, frá Argentínu. Þær léku báðar á samtals 7 undir pari, hvor. Byrjað verður að kynna Alison, en hún var uppreiknað í 3. sætinu.

Alison Muirhead fæddist í Randburg, S-Afríku, 19. október 1998 og er því 22 ára.

Það var pabbi hennar, sem kynnti hana fyrir golfinu; fór fyrst með hana á æfingasvæðið, síðan par-3 velli og svo stóru vellina.

Muirhead er fulltrúi Jumeirah Golf Estates og býr í Dúbaí.

Muirhead var áhugamaður þegar hún tryggði sér kortið sitt á LET 2019, en gerðist atvinnumaður í golfi, fyrr á árinu, 2020.

Fylgjast má með Alison á Instagram – Sjá með því að SMELLA HÉR og Twitter – SMELLIÐ HÉR

Sjá má nýlegt kynningarviðtal við Muirhead með því að SMELLA HÉR: