Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2020 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Kristín Sól semur við Rodgers State University

Kristín Sól Guðmundsdóttir, GM, hefir samið við Rodgers State University.

Hún mun því bætast í  hóp GM-inga sem eru við nám og spila golf við háskóla í Bandaríkjunum.

Fyrir eru þau: Arna Rún (Grand Valley State), Björn Óskar (Louisiana, Lafayette), og Sverrir Haraldsson (Appalachian State).

Sjá má fréttina af undirritun Kristínar Sól við Rodgers á heimasíðu GM – með því að SMELLA HÉR: 

Golf 1 mun að sjálfsögðu færa lesendum sínum fréttir af Kristínu Sól þegar háskólagolfið byrjar að nýju eftir Covid-19.