Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Magdalena Simmermacher (64/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu; þær fjórar sem deildu 20. sætinu; þær 10 stúlkur sem voru T-10; loks þær tvær sem urðu T-8; þýski kylfingurinn Sarina Schmidt, sem var ein í 7. sætinu og norski kylfingurinn Maiken Bing Poulsen, sem var ein í 6. sætinu og Alice Hewson frá Englandi, sem var ein í 5. sætinu.

Nú á bara eftir að kynna þær sem urðu í 4 efstu sætunum og var byrjað á þeirri sem hafnaði einmitt ein í 4. sætinu en það er svissneski kylfingurinn Kim Metraux. Nú verða þær kynntar, sem urðu í 2. sætinu en það er skoski áhugamaðurinn Alison Muirhead og Magdalena Simmermacher, frá Argentínu. Þær léku báðar á samtals 7 undir pari, hvor. Alison hefir þegar verið kynnt og í dag er það Magdalena Simmermacher en hún var uppreiknað í 2. sætinu.

Magdalena Simmermacher fæddist 23. mars 1996 í Buenos Aires, Argentínu og er því 24 ára.

Hún var í bandaríska háskólagolfinu á árunum 2014-2018 við Old Dominion, þaðan sem hún útskrifaðist með gráðu í alþjóðaviðskiptum 2018.

Árið 2019 gerðist Simmermacher atvinnumaður í golfi og komst strax inn á LET með þessum líka glæsibrag – T-2 árangri í lokaúrtökumótinu!!!

Fræðast má nánar um Simmermacher á félagsmiðlum hennar Twitter – Sjá með því að SMELLA HÉR:

og Instagram – Sjá með því að SMELLA HÉR: