Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 11. 2020 | 18:00

GS: Guðmundur Rúnar og Margrét Fjóla kylfingar ársins 2020

Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja (GS) fór fram 3. desember sl.

Við það tækifæri voru útnefnd kylfingar GS 2020.

Kylfingar GS 2020 eru þau Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Margrét Fjóla Viðarsdóttir.

Frábærir kylfingar bæði tvö – Golf 1 óskar þeim innilega til hamingju með heiðurstitlana.