Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2021 | 18:00

Evróputúrinn: Rozner sigraði!

Það var Antoine Rozner frá Frakklandi, sem landaði 2. sigri sínum á Evrópumótaröðinni eftir sigur á Commerical Bank Qatar Masters, sem var mót vikunnar á Evróputúrnum.

Þetta er 2. sigur Rozners á Evróputúrnum.

Sigurskor Rozner svar 8 undir pari, 276 högg (69 72 68 67).

Þrír deildu 2. sætinu á samtals 7 undir pari, hver þeir: Darren Fichardt, Guido Migliozzi og Gaganjeet Bhullar.

Til þess að sjá lokastöðuna á Commerical Bank Qatar Masters SMELLIÐ HÉR: