Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2021 | 23:00

Jóhannes Ármannsson vallarstjóri ársins 2020

Samtök íþrótta og golfvallastarfsmanna á Íslandi, SÍGÍ, eru samtök sem stuðla að fagmennsku hjá félagsmönnum sínum og sér þeim fyrir sem bestum upplýsingum til að auðvelda þeim starf sitt á golf- og íþróttavöllum á Íslandi. Markmið SÍGÍ eru að viðhalda og bæta gæði golf- og íþróttavalla hérlendis.

SÍGÍ hefur staðið fyrir fræðslufundum, sýningum, golfmótum og heimsóknum jafnt hérlendis sem erlendis. Nýverið fór fram ráðstefna á vegum SÍGÍ í höfuðustöðvum Knattspyrnusambands Íslands. Að ráðstefnunni lokinni fór fram kvöldverður í golfskála Golfklúbbsins Keilis á Hvaleyrarvelli. Þar var greint frá kjörinu á vallarstjórum ársins 2020 hjá SÍGÍ en kosið er um vallarstjóra á knattspyrnuvöllum og einnig á golfvöllum.

Jóhannes Ármannsson hjá Golfklúbbi Borgarness varð hlutskarpastur í kjörinu hjá golfvallastjórum og Sigmundur Pétur Ástþórsson hjá FH varð efstur hjá vallarstjórum á knattspyrnuvöllum – og er þetta í fjórða sinn sem hann fær þessa viðurkenningu fyrir Kaplakrikavöll.

Þetta er í fyrsta sinn sem Jóhannes fær þessa útnefningu. Hamarsvöllur í Borgarnesi hefur verið í umsjón Jóhannesar í mörg ár en hann er jafnframt framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness.

Vallarstjórar ársins frá upphafi hjá SÍGÍ

Árið Golfið Klúbbur Knattspyrnan Félag
2020 Jóhannes Ármannsson Borgarnes Sigmundur Pétur Ástþórsson FH Kaplakrikavöllur
2019 Darren Farley GR Grafarholt Sigmundur Pétur Ástþórsson FH Kaplakrikavöllur
2018 Ellert Þórarinsson Brautarholt Magnús Valur Böðvarsson Kópavogsvöllur
2017 Bjarni Þór Hannesson Keilir Kristinn V. Jóhannsson Laugardalsvöllur
2016 Ellert Þórarinsson Brautarholt Sigmundur Pétur Ástþórsson FH Kaplakrikavöllur
2015 Tryggvi Ölver Gunnarsson Oddur Þórdís Rakel Hansen Selfossvöllur
2014 Bjarni Hannesson Keilir Krisinn V. Jóhannsson Laugardalsvöllur
2013 Ágúst Jensson GR Korpa Kristinn V. Jóhannsson Laugardalsvöllur
2012 Daníel Harley Keilir Kristinn V. Jóhannsson Laugardalsvöllur

Heimild: GSÍ