Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2021 | 18:00

Evróputúrinn: Harding sigraði í Keníu

Mót vikunnar á Evróputúrnum var Magical Kenya Open presented by Johnnie Walker.

Mótið fór fram dagana 18.-21. mars 2021 í Karen CC í Nairobi, Keníu.

Sigurvegari varð Justin Harding frá S-Afríku, en hann lék á samtals 21 undir pari, 263 höggum (66 67 64 66).

Í 2. sæti, 2 höggum á eftir varð bandaríski kylfingurinn Kurt Kitayama.

Sjá má lokastöðuna á Kenya Open með því að SMELLA HÉR: