Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2021 | 22:00

Matsuyama sigurvegari Masters 2021

Það var Hideki Matsuyama, sem stóð uppi sem sigurvegari á Masters risamótinu, sem fram fór í þetta sinn 8.-11. apríl á Augusta National.

Hann er fyrsti Japaninn til þess að sigra Masters risatitilinn og þetta er jafnframt fyrsti risatitill hans.

Sigurskor Matsuyama var 10 undir pari (69 71 65 73).

Í 2. sæti varð bandríski kylfingurinn Will Zalatoris á samtals 9 undir pari og 3. sætinu deildu þeir Jordan Spieth og Xander Schauffele á samtals 7 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á Masters 2021 með því að SMELLA HÉR: