Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Eyjólfur Kristjánsson – 17. apríl 2021

Það er tónlistarmaðurinn og stórkylfingurinn  Eyjólfur Kristjánsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Eyjólfur er fæddur 17. apríl 1961 og á því 60 ára merkisafmæli í dag! Eyjólfur er kvæntur Söndru Lárusdóttur. Sjá má skemmtilega afmælisgrein RÚV um Eyfa með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Eyjólfs til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Eyjólfur Kristjánsson – 60 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Helgi Ómar Pálsson, GA, 17. apríl 1962 (59 ára); Susie Redman, frá Salem OH, var á LPGA (varð m.a. í 2. sæti á Nabisco Dinah Shore risamótinu 1995), f. 17. apríl 1966 (55 ára); John Gallacher 17. apríl 1981 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Tandi Cunningham(suður-afrísk á LET varð T-2 á Lalla Meryem í Marokkó 25. mars 2012), f. 17. apríl 1986 (35 ára); PGA kylfingurinn kanadíski Nick Taylor, 17. apríl 1988 (33 ára– sigraði m.a. á AT&T Pebble Beach Pro-Am 9. febrúar 2020); Ragna Ólafsdóttir, GKG 17. apríl 1989 (32 ára); Aaron Cockerill, 17. apríl 1992 (29 ára); Georgina Blackman, 17. apríl 1996 (25 ára); … og … Zandra Davis, stórkylfingur frá Perú, f. 17. apríl og Fjöður Handverk, 17. apríl 1989 (32 ára) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is