Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 20. 2021 | 18:00

PGA: Cink sigraði á RBC Heritage

Stewart Cink er sigurvegari móts vikunnar á PGA Tour, RBC Heritage, sem að venju fór fram á Harbour Town Golf Links á Hilton Head, S-Karólínu, nú dagana 15.-18. apríl 2021.

Sigurskor Cink var 19 undir pari, 265 högg (63 63 69 70)

Cink átti heil 4 högg á þá Emiliano Grillo og Harold Varner III, sem deildu 2. sætinu.

RBC Heritage virðist eiga vel við Cink því þetta er í 3. sinn sem honum tekst að fara með sigur af hólmi í mótinu!

Sjá má lokastöðuna á RBC Heritage 2021 með því að SMELLA HÉR: