Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Axel James Wright og Lucas Bjerregaard – 14. ágúst 2021

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Axel James Wright og Lucas Bjerregaard.

Axel James Wright er fæddur 14. ágúst 2012 og á því 9 ára afmæli í dag. Hann er sonur stórkylfingsins Jason Wright og eru feðgarnir í Golfklúbbi Akureyrar.

Axel James Wright – Innilega til hamingju með 9 ára afmælið!!!

Bjerregaard er fæddur 14. ágúst 1991 og á því 30 ára stórafmæli í dag.

Lucas Bjerregaard

Hann hefir sigrað í 6 atvinnumannsmótum þ.ám. 2 á Evróputúrnum.

Bjerregaard er kvæstur Henriette Friis og saman eiga þau dótturina Josephine.

Henriette Friis, eiginkona Lucas Bjerregaard ásamt dóttur þeirra Josephine, í par-3 keppninni 10. apríl 2019 á Masters risamótinu. Mynd: Kevin C. Cox

Aðrir frægir kylfingar og golftengdir aðilar sem eiga afmæli í dag eru: GSÍ, 14. ágúst 1942 (79 ára); José Eusebio Cóceres, 14. ágúst 1963 (58 ára); Paul Broadhurst, 14. ágúst 1965 (56 ára), Darren Clarke, 14. ágúst 1968 (53 ára); Haukur Sörli Sigurvinsson, 14. ágúst 1980 (41 árs) …. og ….

Golf 1 óskar þeim, sem afmæli eiga í dag, innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is