Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2021 | 10:00

Minningarmót Harðar Barðdal fór fram

Árlegt minningarmót Harðar Barðdal fór fram 9. júní 2021 en mótið er skipulagt af GSFI, golfsamtökum fatlaðra á Íslandi.

Mótið fór fram í Hraunkoti, æfingasvæði golfklúbbsins Keilis. Sigurður Guðmundsson sigraði í flokki fatlaðra en hvatningarbikar GSFI hlaut Jón Gunnarsson.

Metþátttaka var í goða veðrinu og allir glaðir og kátir að fá loks að taka þátt í íþróttaviðburði.

Heimsferðir voru styrktaraðilar mótsins.

Golfæfingar GSFI standa yfir allt árið í Hraunkoti, æfingasvæði golfklúbbsins Keilis Hafnarfirði og allir eru velkomnir að mæta.

Heimild: Íþróttasamband fatlaðra