Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 19. 2021 | 07:21

Paulina Gretzky mun klæðast brúðarkjól frá Veru Wang

Paulina Gretzky (32 ára) barnsmóðir nr. 1 á heimslistanum, Dustin Johnson (37 ára) og kærasta hans frá árinu 2013 birti myndir af sér í apríl sl. þar sem hún skálar í kampavíni við tískuhönnuðinn Veru Wang og var að máta brúðarkjóla hjá henni. Sjá myndir hér að neðan

Á þriðjudaginn sl. birti Gretzky að nýju mynd, nú af sér ásamt hinni 72 ára Veru Wang, vini sínum Jeremy Cohen og brúðarmey sinni (maid of honor) Kristinu Melnichenko. Sjá mynd hér að neðan

Með myndinni lét Paulina fylgja eftirfarandi:

“Let the countdown begin✨@verawang,”

“@verawang i love you so much!!!! wedding dress of dreams coming soon❤️,”  “Bridal babe alert 🔥🔥🔥🔥🔥🔥. @paulinagretzky WHOA.”

Þó að myndir af brúðkaupskjólnum hafi ekki fylgt er augljóst að draumabrúðkaupskjóll er í uppsiglinu svo og brúðkaup Paulinu og DJ.

Í aðalmyndaglugga: Paulina í kjól, hönnuðum af Fannie Schiavoni ($1,001), sem hún var í á afmælinu sínu á sl. ári  – ásamt mynd þar sem brúðguminn verðandi, DJ, kyssir hana.