Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2021 | 18:00

Women’s Open 2021: Skandinavar í forystu e. 3. dag

Síðasta kvenrisamót ársins fer nú fram á Carnoustie linksaranum í Skotlandi og stendur dagana 19.-22. ágúst 2021.

Fyrir lokahringinn eru Skandinavar með forystu; þ.e. efsta sætinu deila Anna Nordqvist frá Svíþjóð og Nanna Koertz Madsen frá Danmörku.

Þær hafa báðar spilað á 9 undir pari, 207 höggum.

Fast á hæla þeirra er hin mexíkansk-bandaríska Lizette Salas , á 8 undir pari, 208 höggum, en hún er á höttunum eftir 1. risatitli sínum, líkt og Koertz Madsen.

Nordqvist á 2 risatitla í beltinu, en þessi sigur er henni mikilvægur sem liður í að ná að sigra í öllum 5 risamótum kvennagolfsins á ferlinum. Fyrir hefir hún sigrað í Women´s PGA Championship (2009) og Evían Championship (2017).

Skandinavar eiga síðan 2 kylfinga sem eru T-4 ásamt heimakonunni og áhugakylfingnum skoska Louise Duncan og Lexi Thompson frá Bandaríkunum.  Þetta eru þær Sanna Nuutinen frá Finnlandi og Madelene Sägström frá Svíþjóð. Þær hafa allar spilað á samtals 7 undir pari og eiga því enn góðan sjéns á sigri í þessu risamóti.

Ekki kemur á óvart að Duncan 21 árs, sé ofarlega á skortöflunni, því hún er öllum hnútum kunnug á Carnoustie (sagði í sigurviðtali  eftir Women’s Amateur Championship þ.e. eftir  sigur á Jóhönnu Leu Lúðvíksdóttur 9&8) að hún hefði spilað mikið þar áður fyrr.

Fljótt skipast veður í lofti, því þær sem voru í forystu í hálfleik hafa færst niður skortöfluna; Georgia Hall er nú T-8 ásamt 6 öðrum kylfingum (á samtals 6 undir pari) – á enn möguleika á að sigra – er 3 högg á eftir forystunni og Mina Harigae er T-27 ásamt 5 öðrum kylfingum (á samtals 3 undir pari) og næsta vonlítið að hún nái að sigra í mótinu.

Sjá má stöðuna á AIG Women´s Open 2021 með því að SMELLA HÉR: