Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 14:00

Evróputúrinn: Veerman sigraði á D+D Czech Masters

Það var Johannes Veerman, sem sigraði á móti vikunnar á Evróputúrnum, D+D Czech Masters.

Mótið fór fram dagana 19.-22. ágúst 2021 í Albatross Golf Resort, Prag, Tékklandi.

Sigurskor Veerman var 15 undir pari.

Finninn Tapio Pulkkanen , sem leiddi fyrir lokahringinn og Sean Crocker frá Bandaríkjunum deildu 2. sæti, 2 höggum á eftir.

Sjá má lokastöðuna á D+D Czech Masters með því að SMELLA HÉR: