Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 16:15

Íslandsmót golfklúbba 2021 – GR sigraði í 1. deild kvenna + 50 ára

Íslandsmót golfklúbba 1. deild kvenna +50 ára flokki fór fram á Kirkjubólsvelli hjá hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 19.-21. ágúst.

Alls tóku 8 klúbbar þátt og þar sem að keppt var um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild 2021 í +50 ára.

Golfklúbbur Reykjavíkur og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar léku til úrslita þar sem að GR hafði betur 4-1. Golfklúbburinn Keilir endaði í þriðja sæti eftir 4 1/2 – 1/2 sigur gegn Golfklúbbnum Oddi. Golfklúbbur Akureyrar féll í 2. deild.

Íslandsmeistarasveit GR skipuðu eftirfarandi kylfingar: Ragnhildur Sigurðardóttir;  Ásgerður Sverrisdóttir;  Steinunn Sæmundsdóttir, Signý Marta Böðvarsdóttir, Auður Elísabet Jóhannsdóttir,  Guðný María Guðmundsdóttir, Þuríður Valdimarsdóttir,  Guðrún Garðars og Ásta Óskarsdóttir
Liðsstjóri: Ásta Óskarsdóttir

Sjá má úrslit í öllum viðureignum með því að SMELLA HÉR: