Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 17:55

Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Ásdís Íslandsmeistari í stúlknaflokki 19-21 árs

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021.

Ásdís Valtýsdóttir, GR, sigraði í flokki 19-21 árs en hún lék á 252 höggum, 36 höggum yfir pari (84-83-85).

Hún er því nýkrýndur Íslandsmeistari í stúlknaflokki 19-21 árs.

María Björk Pálsdóttir, GKG, varð önnur á 253 höggum, 37 höggum yfir pari (85-89-79).

Í aðalmyndaglugga: María Björk t.v. og Íslandsmeistarinn Ásdís t.h. Mynd: GSÍ