Gunnlaugur Árni
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2021 | 08:00

Unglingamótaröð GSÍ 2021: Fjóla Margrét og Markús stigameistarar 14 ára og yngri

Fjóla Margrét Viðarsdóttir er stigameistari unglinga 2021 í flokki 14 ára og yngri.

Fjóla Margrét lék á öllum fimm mótum tímabilsins. Hún sigraði á fjórum þeirra og varð einu sinni í öðru sæti. Hún sigraði á báðum Íslandsmótunum, í holukeppni og höggleik.

Eva Kristinsdóttir varð í öðru sæti á stigalistanum. Hún lék á öllum fimm mótum tímabilsins og hún sigraði á fyrsta móti tímabilsins. Eva varð tvívegis í öðru sæti og tvívegis í þriðja sæti.

Auður Bergrún Snorradóttir, GA, varð í þriðja sæti í þessum aldursflokki. Hún varð tvívegis í öðru sæti og tvívegis í fjórða sæti.

Alls tóku 32 keppendur þátt í þessum flokki á tímabilinu.

Stigalisti 14 ára og yngri stúlkur:

____________________________________________________________

Markús Marelsson, GK, er stigameistari unglinga 2021 í flokki 14 ára og yngri.

Markús lék á öllum fimm mótum tímabilsins og hann stóð uppi sem sigurvegari á þeim öllum og landaði tveimur Íslandsmeistaratitlum, í holukeppni og höggleik.

Hjalti Jóhannsson, GK, varð í öðru sæti í flokki 14 ára og yngri. Hann lék á öllum fimm mótum tímabilsins og varð í öðru sæti á þeim öllum.

Hjalti Kristján Hjaltason, GR, varð í þriðja sæti í þessum aldursflokki en hann er 11 ára og á því þrjú ár eftir í þessum flokki. Hjalti Kristján varð þriðji á einu móti en varð fjórði á hinum fjórum mótunum sem hann tók þátt í.

Alls tóku 45 kylfingar þátt í þessum aldursflokki á tímabilinu.

Stigalisti 14 ára og yngri piltar: