Gunnlaugur Árni
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 27. 2021 | 06:30

Unglingamótaröð GSÍ 2021: María Eir og Böðvar Bragi stigameistarar

María Eir Guðjónsdóttir, GM, er stigameistari 2021 í flokki 17-18 ára á unglingamótaröð GSÍ e miki spenna var um efsta sætið.

María Eir tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hún sigraði á tveimur þeirra og þar á meðal á Íslandsmótinu í golfi 2021. María Eir varð önnur á hinum þremur mótum tímabilsins.

Katrín Sól Davíðsdóttir, GM, varð önnur á stigalistanum en hún sigraði einnig á tveimur mótum – og þar af var annað þeirra á Íslandsmótinu í holukeppni. Hún varð önnur á tveimur mótum og í þriðja sæti á einu þeirra.

Nína Margrét Valtýsdóttir, GR, varð þriðja á stigalistanum í þessum aldursflokki. Hún lék á öllum fimm mótunum og sigraði á einu þeirra.

Alls tóku 8 kylfingar þátt á stigamótaröð 17-18 ára stúlkna á þessu ári.

Stigalisti 17-18 árs stúlkur:

____________________________________

Böðvar Bragi Pálsson, GR, er stigameistari unglinga 2021 í flokki 17-18 ára.

Böðvar Bragi Pálsson

Böðvar Bragi tók þátt á fjórum mótum af alls fimm á keppnistímabilinu og varð stigameistari með töluverðum mun.

Hann sigraði á þremur þeirra – og landaði báðum Íslandsmeistaratitlunum í þessum flokki, holukeppni og höggleik.

Björn Viktor Viktorsson, GL, varð annar á stigalistanum. Björn Viktor lék á öllum fimm mótunum og hann varð í 2. sæti á þremur þeirra.

Mikael Máni Sigurðsson, GA, varð þriðji á stigalistanum en hann sigraði á einu móti af alls fimm sem hann tók þátt í.

Alls tóku 27 keppendur þátt í mótum tímabilsins í flokki 17-18 ára pilta.

Stigalisti 17-18 ára piltar: