Hank Kuehne
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hank Kuehne ——– 11. september 2021

Afmæliskylfingur dagsins er Henry August „Hank“ Kuehne. Kuehne fæddist í Dallas, Texas, 11. september 1975 og á því 46 ára afmæli í dag. Hann var í bandaríska háskólagolfinu í Oklahoma State, líkt og Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO. Systkini Hank eru líka kylfingar; systir hans Kelli spilaði á LPGA og bróðir hans Trip varð í 2. sæti á eftir Tiger í US Amateur og hefir alltaf verið áhugamaður. Hank er 1,88 m og 93 kg. Hank varð stigameistari á kanadíska PGA 2002. Hann spilaði síðar á PGA og er besti árangur hans þar tveir T-2 árangrar þ.e. á Shell Houston Open  2003 og  John Deere Classic 2005. Besti árangur hans í risamóti er 65. sætið á Opna bandaríska 1999. Kuehne býr í Palm Beach Gardens í Flórída og á einn son með fyrrum eiginkonu sinni Nicole, Henry August Kuehne III (f. 2005). Eftir skilnaðinn við Nicole, hefir hann m.a. sést með Venus Williams.

Aðrir frægir sem afmæli eiga í dag eru: Jim Sluman, 11. september 1957 (64 ára); Anton Karlsson, 11. september 1993 (28 ára) ….. og ….. Félagsmiðstöðin Vitinn (323 ára); Hringa Jewellery (40 ára STÓRAFMÆLI) og Thoa-Art Glass (49 ára) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is