Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2012 | 14:00

ALPG: Hver er kylfingurinn: Rachel L. Bailey?

Golf 1 heldur hér áfram að kynna kylfinga sem spila á ALPG (ens. Australian Ladies Professional Golf). Í dag verður Rachel L. Bailey kynnt en hún vermdi efsta sætið eftir 1. hring Bing Lee/Samsung Women´s NSW Open, s.l. helgi, þar sem hin 14 ára Lydía Ko skrifaði sig í sögubækurnar með því að slá aldursmet – þ.e. hún varð yngsti kylfingurinn til þess að sigra mót atvinnumanna hvort heldur er karla eða kvenna.  Rachel lauk leik í því móti í 8. sæti en mætir nú keik til leiks í RACV Australian Ladies Masters, sem hófst í dag, en eftir 1. hring deilir Rachel 40. sæti á -1 undir pari.

Rachel L. Bailey fæddist 27. september 1980 í Renrith í Ástralíu og er því 31 árs.

Rachel Bailey.

Hún er dóttir stærðfræðikennara og ólst upp í Blue Mountains, sem eru í klukkustundar fjarlægðar keyrslu vestur af Sydney, í Ástralíu.

Rachel byrjaði í golfi 10 ára gömul.

Hún býr nú í Faulconbridge í New South Wales og spilar golf í Springwood Country Club í Springwood.

Hún var í New Mexico State University í Bandaríkjunum á árunum 1999-2003 og spilaði með kvennagolfliði skólans og  útskrifaðist með gráðu í markaðsfræðum (business marketing). Sama ár og hún útskrifaðist gerðist hún atvinnukylfingur.

Í dag spilar Rachel bæði á ALPG og LET.

Meðal áhugamála Rachel er að fara í ræktina, horfa á kvikmyndir og spila tölvuleiki.

Rachel tók þátt 2006 í golfþáttum Golf Channel: Big Break VI í Trump National.

Sem áhugamaður 17 ára varð Rachel fyrst til að sigra bæði Combined High School NSW höggleikinn og holukeppni á sama árinu. Árið 2007 sigraði hún í Australian All-Schools competition. Meðan hún var í háskólagolfinu í Bandaríkjunum vann hún  Sun Belt Conference championship árið 2002 og var 9 sinnum meðal topp 10 á mótum sem hún tók þátt í. Hún var tvívegis í liðinu sem tók þátt í „the Big West Conference Championship“ (2000, 2001) og „the Sunbelt Conference Championship“ (2002, 2003).

Árin 2004-2010 spilaði Rachel á Duramed Futures Tour. Besti árangur Rachel á Futures er T-3 sæti á Louisiana Futures Classic, 2006 og  Michelob ULTRA Duramed FUTURES Players Championship in Decatur, Ill, árið 2007. Árið 2008 keppti Rachel á U.S. Women´s Open Championship risamótinu. Hún á í beltinu tvo sigra á áströlsku ALPG (2008 og 2009) í  St George’s Basin Country Club Pro-Am og the Xstrata Coal Branxton Pro-Am.

Keppnistímabilið 2011 fékk  Rachel Bailey fullan þátttökurétt á Ladies European Tour, þar sem hún varð í 18. sæti í Q-school LET í desember 2010.

Heimild: Wikipedia