Kyle Stanley.
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2012 | 09:00

PGA: Kyle Stanley í tárum eftir tap á Farmers Insurance Open

Kyle Stanley, sem virtist svo ískaldur á og utan vallar næstum allt Farmers Insurance Open táraðist eftir tap í umspili um titilinn í gær, sunnudaginn (29. janúar 2012).

Þessi 24 ára Bandaríkjamaður (Stanley) var um hríð með 7 högga forystu snemma á lokahringnum í Torrey Pines, en kastaði frá sér 3 högga forystu sem hann hafði enn á par-5 lokah0lunni.

Stanley þurfti aðeins að fá 7 högga skramba til þess að næla sér í 1. sigur sinn á PGA Tour, en aðhögg hans með sandwedge-inum geigaði og fór í vatnið við flötina og þrípútt varð síðan til þess að hann þurfti að fara í umspil.

„Þetta er erfitt, það er virkilega erfitt að taka þessu,“ sagði Stanley við fréttamenn og reyndi að halda aftur af tárum og barðist við að sýna tilfinningar eftir tapið á 2. holu umspilsins.

„Ég veit að ég á eftir að snúa aftur. Ég hef engar áhyggjur af því.“

„Það er bara erfitt að kyngja þessu í augnablikinu. Ég verð bara að vera þolinmóður. Eitt að markmiðum mínum fyrir þetta ár var að koma mér í sigurstöður og það kem ég til með að gera.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Stanley er nálægt sigri en tapar síðan. Hann tapaði með 1 höggi fyrir Steve Stricker á síðasta ári á John Deere Classic og hann var í algjöri sjokki eftir 2. holu umspilið í gær.

STANLEY ER SLEGGJA

Stanley, sem er mikil sleggja og hafði haft yfirburði á hinum krefjandi Suður-velli í Torrey Pines allt mótið hélt að hann hefði slegið kjörhögg með sandwedge-inum sínum, eftir að hafa ákveðið að leggja upp á 570 yarda 18. holunni.

„Við reyndum að leggja upp nógu nálægt til þess að ekki þyrfti of mikið spinn,“ sagði Stanley, sem var með svöl gleraugu á öllum lokahringnum.

„Mér fannst höggið ágætt, kannski með of miklu spinni.“

Spinnið reyndist of mikið og spannst boltinn að flatarkantinum og síðan var enn ferð á honum þannig að hann rann niður og lenti í vatninu við flötina.

Eftir að Stanley tók víti hafði hann 2 pútt til að koma boltanum ofan í holu fyrir sigri. Hann missti 3 feta sigurpútt sitt „Það bara brotnaði til vinstri,“ sagði Stanley.

„Þegar ég horfi tilbaka veit ég í raun ekki hvað ég var að hugsa. Þetta er ekki erfið golfhola. Þetta er í raun nokkuð blátt áfram par-5 braut. Ég gæti líklega spilað hana 1000 sinnum og aldrei fengið 8.“

En svona er nú bara golfið!