Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2022 | 22:00

Unglingamótaröðin 2022: Perla Sól stigameistari 15-16 ára telpna

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, er stigameistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ flokki 15-16 ára. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, varð önnur og Auður Bergrún Snorradóttir, GM, varð þriðja.

Perla Sól tók þátt á fjórum mótum af alls fimm og sigraði hún í öll fjögur skiptin. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik og er þetta fimmta árið í röð sem Perla Sól sigrar á Íslandsmótinu í höggleik í sínum aldursflokki.

Fjóla Margrét sigraði á einu móti á tímabilinu, Íslandsmótinu í holukeppni. Hún varð tvívegis í þriðja sæti og einu sinni í því fjórða. Hún tók þátt á fjórum mótum af alls fimm.

Auður Bergrún tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hún lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni gegn Fjólu Margréti. Auður Bergrún varð tvívegis í öðru sæti á tímabilinu og tvívegis í því fimmta.

Sjá má stigalistann í heild með því að SMELLA HÉR:

Í aðalmyndaglugga: Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Mynd: seth@golf.is

Texti: GSÍ