Ragnheiður Jónsdóttir | september. 11. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jeff Sluman ——– 11. september 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Jeffrey George (Jeff) Sluman. Sluman fæddist 11. september 1957 í Rochester, New York og á því 65 ára afmæli í dag. Hann átti heldur óvenjulegan feril. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1980. Meðan að flestir sigra á þegar þeir eru 20-30 ára þá vann Sluman ekki fyrsta mótið sitt fyrr en hann var 30 ára, en þá líka risamót þ.e. PGA Championship risamótið 1988.

Síðan gekk ekkert sérstaklega í 10 ár en í kringum 40 ára aldurinn fór Sluman að ganga vel og hann sigraði í hverju mótinu á fætur öðru. Sluman hefir alls sigrað í 15 mótum sem atvinnumaður, þar af 6 mótum á PGA Tour og 4 á Champions Tour.

Aðrir frægir sem afmæli eiga í dag eru: Hank Kuehne, 11. september 1975 (47 ára – var í bandaríska háskólagolfinu í Oklahoma State líkt og Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO); Thoa-Art Glass, 11. september 1972 (50 ára STÓRAFMÆLI); Hringa Jewellery,  11. september 1981 (41 árs; )Félagsmiðstöðin Vitinn , 11. september 1988 (34 ára)….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is