Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2023 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA 2023 (14/50): SH Kim

Hér verður fram haldið að kynna stuttlega einn þeirra 25 kylfinga, sem hlutu kortið sitt á PGA Tour eftir að hafa orðið í einu af 25 efstu sætum á Korn Ferry Tour eftir reglulega keppnistímabilið 2022.

Sá sem varð í 12. sæti verður kynntur í dag, en það er SH Kim.

SH Kim (m.ö.o Kim Seong-hyeon) fæddist í Changwon, 17. september 1998 í S-Kóreu og er því 24 ára.

Hann hlaut háskólamenntun í S-Kóreu í „Korea National Sport University.“

Eftir útskrift 2017 gerðist hann atvinnumaður í golfi.

Hann hefir unnið sér inn $917,458 á stuttum golfferli sínum.

SH Kim fór í úrtökumót fyrir Korn Ferry Tour 2021 og var kominn á mótaröðina 2022. Besti árangur hans á Korn Ferry 2022, var 2. sætið í Lake Charles Championship, þar sem hann tapaði í bráðabana fyrir Trevor Werbylo. Auk þess varð hann 4 sinnum meðal efstu 10 á Korn Ferry 2022 keppnistímabilið. Hann tók þátt í 22 mótum 2022 og komst 18 sinnum gegnum niðurskurð. Hann fékk undanþágu til að taka þátt í Shriners Children’s Open á PGA Tour 2022, þar sem hann náði T-4 árangri.

Þessi árangur hefir orðið til þess að hann er nú kominn á PGA Tour, 2023.

Hann á tvo alþjóðlega sigra í beltinu: á KPGA Championship (2020) og á Japan PGA Championship (2021).