Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sherri Steinhauer – 27. desember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Sherri Steinhauer. Hún er fædd 27. desember 1962 í Madison, Wisconsin og fagnar því 60 ára í dag. Steinhauer gerðist atvinnumaður 1985 eftir útskrift frá University of Texas, Austin, þar sem hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu.  Á ferli sínum sigraði hún 10 sinnum, þar af 8 sinnum á LPGA og tvívegis á risamótum kvennagolfsins: de Maurier Classic (1992) og Opna breska kvenrisamótinu (2006). Árið 2011 tilkynnti hún að hún myndi draga sig í hlé frá keppnisgolfi, vegna þrálátra verkja og í kjölfarið uppskurðar á mjöðm. Hún var m.a. einn af varafyrirliðum liðs Bandaríkjanna í Solheim Cup sama ár, þ.e. 2011.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sherri Steinhauer, 27. desember 1962 (60 ára); Árni Hansson, GR, 27. desember 1968 (54 ára); Matthew Zions, 27. desember 1978 (44 ára); Helena Callahan, 27. desember 1986 (35 ára); Benjamin Poke, 27. desember 1991 (31 árs); Unnar Geir Einarsson, GS, 27. desember 1994 (28 ára); Doc Hudspeth Redman, 27. desember 1997 (25 ára); Júlíana Kristný Sigurðardóttir, 27. desember 1998 (24 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.i