Afmæliskylfingur dagsins: Sigurður Ingvi Rögnvaldsson GHD – 31. janúar 2023
Afmæliskylfingur dagsins er íþróttamaður Dalvíkur 2011, kylfingurinn Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, í Golfklúbbnum Hamar, á Dalvík (GHD). Sigurður Ingvi er fæddur 31. janúar 1993 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Sigurður Ingvi varð árið 2011 fyrsti landsliðsmaður Golfklúbbsins Hamars á Dalvík. Hann tryggði sér sæti í unglingalandsliðinu og keppti fyrir hönd Íslands á Evrópumóti unglingalandsliða.
Þá varð hann í 2.sæti á Íslandsmótinu í höggleik, unglinga 17- 18 ára. Einnig varð hann Norðurlandsmeistari í 17-18 ára flokki unglinga. Sigurður Ingvi var í fremstu röð í sínum aldursflokki um árabil og stundaði æfingar af þrautseigju og af miklu kappi og dug. Hann var í 15 kylfinga 2012 Norðurlandsúrvali þáverandi landsliðsþjálfara, Úlfars Jónssonar.
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum sem og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga í dag, innilega til hamingju með afmælið!
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Heiðar Jóhannsson, GBB, 31. janúar 1955 (68 ára); Michael Louis Allen, 31. janúar 1959 (64 ára); Páll Heiðar (59 ára); Justin Timberlake, 31. janúar 1981 (42 ára); Tina Miller 31. janúar 1983 (40 ára); Ásgrímur Jóhannesson (34 ára); Akshay Bhatia, 31. janúar 2002 (21 árs); Magnús Árni Skúlason ….. og …..
Golf 1 óskar afmæliskylfingunum sem og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga í dag, innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024